Skip to main

Vafrakökustefna

Vafrakökustefna

Við hjá Hinge leggjum áherslu á að veita skýrar og aðgengilegar upplýsingar um hvernig við söfnum og vinnum úr gögnum um þig. Þessari síðu er ætlað að upplýsa þig um starfshætti okkar varðandi vafrakökur og útskýra hvernig þú getur stjórnað þeim.

Veistu nú þegar allt sem þú þarft að vita um vafrakökur og vilt bara breyta stillingunum þínum?

Ekkert mál. Farðu í reikningsstillingarnar þínar í appinu til að breyta persónuverndarstillingunum þar.

Viltu vita meira um vafrakökur og hvernig við notum þær?

Við skulum gjarnan útskýra það! Haltu áfram að lesa.

Athugaðu: Þessi vafrakökustefna fjallar ekki um hvernig við vinnum með persónuupplýsingar þínar utan notkunar okkar á vafrakökum. Frekari upplýsingar um hvernig við vinnum með persónuupplýsingar þínar má finna í persónuverndarstefnunni okkar hér.

Hvað eru vafrakökur?

Vafrakökur eru litlar textaskrár sem eru sendar eða opnaðar í vafranum þínum eða minni tækisins. Vafrakaka inniheldur yfirleitt heiti lénsins (netstaðsetning) sem vafrakakan kemur frá, „endingartíma“ vafrakökunnar (þ.e. hvenær hún rennur út) og handahófskennt, einkvæmt númer eða svipað auðkenni. Vafrakaka getur einnig innihaldið upplýsingar um tækið þitt, svo sem notendastillingar, vafraferil og virkni sem fer fram á meðan þú notar þjónustu okkar.

Eru til mismunandi gerðir af vafrakökum?

Vafrakökur fyrsta og þriðja aðila

Það eru til vafrakökur fyrsta aðila og vafrakökur þriðja aðila. Vafrakökur fyrsta aðila koma beint frá okkur inn á tækið þitt. Til dæmis notum við vafrakökur fyrsta aðila til að aðlaga vefsíðuna okkar að tungumálastillingum vafrans þíns og til að skilja betur notkun þína á vefsíðunni. Vafrakökur þriðja aðila koma inn á tækið þitt frá samstarfsaðilum okkar og þjónustuaðilum. Þú getur fengið frekari upplýsingar um þessa samstarfsaðila og þjónustuaðila á vefsíðunni okkar og í samþykkisstjórnunarverkfærum í appinu. Nánari upplýsingar um þessi verkfæri er að finna í „Hvernig er hægt að stjórna vafrakökum?“ hér að neðan.

Lotukökur og varanlegar vafrakökur

Það eru til lotukökur og varanlegar vafrakökur. Lotukökur endast aðeins þar til þú lokar vafranum þínum. Við notum lotukökur af ýmsum ástæðum, þar á meðal til að fá upplýsingar um notkun þína á vefsíðu okkar í einni vafralotu og til að hjálpa þér að nota vefsíðuna á skilvirkari hátt. Varanlegar vafrakökur eru með lengri endingartíma og endast lengur en núverandi lota. Þessar tegundir af vafrakökum er hægt að nota til að hjálpa þér að skrá þig fljótt inn á vefsíðuna aftur, í greiningarskyni og af öðrum ástæðum sem lýst er hér að neðan.

Hvað með aðra rakningartækni, eins og vefvita og SDK?

Önnur tækni eins og vefvitar (einnig kallaðir pixlar, merki eða gagnsæ GIF), rakningarvefslóðir eða hugbúnaðarþróunarsett (SDK) eru notuð í svipuðum tilgangi og vafrakökur. Vefvitar eru litlar grafískar skrár sem innihalda einkvæmt auðkenni og gera okkur kleift að greina hvenær einhver hefur heimsótt þjónustu okkar eða opnað tölvupóst frá okkur. Rakningarvefslóðir eru sérsniðnir tenglar sem hjálpa okkur að skilja hvaðan umferðin á vefsíður okkar kemur. SDK eru litlir kóðabútar inni í forritum sem virka eins og vafrakökur og vefvitar.

Til einföldunar köllum við þessa tækni einnig „vafrakökur“ í þessari vafrakökustefnu.

Til hvers notum við vafrakökur?

Eins og aðrir þjónustuaðilar á netinu notum við vafrakökur til að veita, tryggja og bæta þjónustu okkar, þar á meðal með því að muna kjörstillingarnar þínar, þekkja þig þegar þú heimsækir vefsíðu okkar, mæla árangur markaðsherferða okkar og sérsníða auglýsingar að áhugasviðum þínum. Til að ná þessum markmiðum gætum við einnig tengt upplýsingar úr vafrakökum við aðrar persónuupplýsingar sem við geymum um þig.

Þegar þú notar þjónustu okkar gætu sumar eða allar eftirfarandi gerðir af vafrakökum verið settar á tækið þitt.

Tegund vafraköku

Lýsing

Nauðsynlegar vafrakökur

These cookies are strictly necessary to provide you our services, such as enabling you to log in, remembering your preferences and keeping you safe by detecting malicious activity.

Greiningarkökur

Þessar vafrakökur hjálpa okkur að skilja hvernig þjónusta okkar er notuð og hjálpa okkur að aðlaga og bæta þjónustuna fyrir þig.

Auglýsinga- og markaðssetningarkökur

Þessar vafrakökur eru notaðar til að ákvarða hversu árangursríkar markaðsherferðir okkar eru og sýna þér auglýsingar sem eru meira viðeigandi fyrir þig. Á meðal hlutverka þeirra er að hjálpa okkur að skilja hversu mikilli umferð markaðsherferðir skila í þjónustuna okkar, koma í veg fyrir að sama auglýsingin birtist ítrekað, tryggja að auglýsingar birtist rétt fyrir auglýsendur, velja auglýsingar sem eru viðeigandi fyrir þig og mæla fjölda birtra auglýsinga og árangur þeirra, svo sem hversu margir áttu samskipti við tiltekna auglýsingu

Samfélagsmiðlakökur

Þessar vafrakökur eru notaðar til að gera þér kleift að deila síðum og efni í þjónustu okkar sem þér finnst áhugavert á samfélagsmiðlum þriðja aðila og öðrum vefsíðum eða þjónustu. Þessar vafrakökur kunna einnig að vera notaðar í auglýsingaskyni.

Hvernig er hægt að stjórna vafrakökum?

Það eru nokkrir möguleikar í boði fyrir þig varðandi stjórnun á vafrakökum. Athugaðu að breytingar sem þú gerir á vafrakökustillingum þínum geta leitt til þess að notkun þjónustu okkar verði minna ánægjuleg, þar sem hún verður hugsanlega ekki lengur jafn sérsniðin. Í sumum tilfellum gætirðu jafnvel ekki getað notað alla eða hluta af þjónustu okkar.

Verkfæri sem við bjóðum upp á

Þú getur valið og breytt vafrakökustillingunum þínum hvenær sem er með því að fara í reikningsstillingarnar þínar í appinu og breyta vafrakökustillingunum þínum þar.

Stýringar fyrir vafra og tæki

Sumir vafrar bjóða upp á stillingar sem gera þér kleift að stjórna eða hafna vafrakökum, eða sem láta þig vita þegar vafrakökur eru settar á tölvuna þína. Aðferðin við að stjórna vafrakökum er örlítið mismunandi eftir vöfrum. Þú getur skoðað skrefin í hjálparvalmynd vafrans þíns.

Þú gætir einnig getað endurstillt auðkenni tækja eða afþakkað söfnun eða vinnslu auðkenna með því að nota viðeigandi stillingu í snjalltækinu þínu. Aðferðirnar við stjórnun auðkenna eru örlítið mismunandi fyrir hvert tæki. Þú getur skoðað tiltekin skref í hjálpar- eða stillingavalmynd tækisins þíns.

Auglýsingaverkfæri byggð á áhugasviðum

Auglýsingafyrirtæki geta tekið þátt í sjálfseftirlitsáætlunum sem gera þér kleift að afþakka allar auglýsingar þeirra sem tengjast áhugasviðum. Frekari upplýsingar um þetta er að finna á eftirfarandi síðum: Digital Advertising Alliance; Interactive Digital Advertising Alliance; Appchoices.

Afþökkun þýðir ekki að þú munir ekki sjá auglýsingar – það þýðir að þú munir ekki sjá sérsniðnar auglýsingar frá fyrirtækjunum sem taka þátt í þessum afþökkunaráætlunum. Einnig tökum við fram að ef þú eyðir vafrakökum á tækinu þínu eftir að þú hefur afþakkað þetta þarftu að afþakka það aftur.

Google™-vafrakökur

Google™ Maps API-vafrakökur

Sumir eiginleikar vefsíðunnar okkar og sumar þjónustur Hinge reiða sig á notkun Google™ Maps API-vafrakaka. Slíkar vafrakökur verða geymdar á tækinu þínu.

Þegar þú skoðar þessa vefsíðu og notar þjónustur sem byggja á vafrakökum Google™ Maps API samþykkir þú geymslu og söfnun slíkra vafrakaka á tækinu þínu og aðgang, notkun og miðlun Google á gögnum sem þannig er safnað.

Google™ heldur utan um upplýsingar og val þitt varðandi vafrakökur Google™ Maps API í gegnum annað viðmót en það sem vafrinn þinn býður upp á. Nánari upplýsingar er að finna á https://www.google.com/policies/technologies/cookies/.

Google Analytics

Við notum Google Analytics, þjónustu frá Google sem notar vafrakökur og aðra gagnasöfnunartækni til að safna upplýsingum um notkun þína á vefsíðunni og þjónustunni til að upplýsa okkur um þróun á notkun vefsíðunnar.

Nánari upplýsingar um hvernig Google safnar og vinnur úr gögnum er að finna á https://policies.google.com/technologies/partner-sites. Þú getur afþakkað Google Analytics með því að hlaða niður vafraviðbótinni fyrir afþökkun á Google Analytics á https://tools.google.com/dlpage/gaoptout og afþakkað sérsniðnar auglýsingar frá Google á https://adssettings.google.com/.

Hvernig á að hafa samband við okkur?

Ef þú hefur spurningar um þessa vafrakökustefnu geturðu haft samband við okkur svona:

Ef þú býrð á Evrópska efnahagssvæðinu, Bretlandi eða Sviss:

Á netinu: hér

Með bréfpósti:

1 Hatch Street Upper

Dublin 2

Dublin

D02 PY28

Ireland

Ef þú býrð utan Evrópska efnahagssvæðisins, Bretlands eða Sviss:

Á netinu: hér

Með bréfpósti:

Data Protection Officer

Hinge, Inc

809 Washington Street, Third Floor

New York, NY 10014